Sport

Helgi Sig á leið til Fram

Fyrrverandi landsliðsmaðurinn Helgi Sigurðsson er genginn til liðs við sitt gamla félag, Fram sem leikur í 1. deild karla í fótbolta á næsta tímabili. Helgi sem hefur undanfarin 2 ár leikið með AGF í Danmörku hefur gert 2 ára samning við Safamýrarliðið en hann lék að auki með Víkingi áður en hann hélt utan í atvinnumennsku árið 1994. Helgi yfirgefur danska liðið um áramótin og heldur þá heim á leið. Fótbolt.net greindi frá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×