Sport

Sögulegur sigur Aston Villa

Kevin Phillips stimplaði sig í sögubækurnar hjá Aston Villa í dag þegar hann skoraði sigurmark liðsins í 0-1 sigri í nágrannaslagnum við Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þetta var fyrsti úrvalsdeildarsigur Villa á nágrönnum sínum í 7 viðureignum eða síðan Birmingham endurheimtu sæti sitt í úrvalsdeild árið 2002. Aston Villa lyfti sér upp í 14. sæti og hefur halað inn 9 stig í níu leikjum en Birmingham er hins vegar í fjórða neðsta sæti með 6 stig eftir níu leiki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×