Sport

Ívar & Brynjar með í sigri Reading

MYND/Getty
Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson léku báðir allan leikinn með Reading sem endurheimti 2. sætið í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag með 2-0 sigri á Ipswich. Richard Naylor gerði sjálfsmark sem kom Reading yfir í fyrri hálfleik eftir sendingu frá Kevin Doyle sem svo skoraði seinna mark Reading og gulltryggði sigurinn. Reading er 3 stigum á eftir toppliði Sheffield Utd í deildinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×