Tvö mörk hjá Gunnari Heiðari í dag 16. október 2005 00:01
Gunnar Heiðar Þorvaldsson heldur áfram að fara hamförum í sænska fótboltanum en hann skoraði tvö mörk fyrir Halmstad í dag sem valtaði fyrir botnlið sænsku úrvalsdeildarinnar, Assyriska, 5-0. Fyrra markið skoraði Gunnar á 31. mínútu þegar hann kom sínum mönnum í 1-0 en seinna markið kom á 67. mínútu og var lokamark leiksins. Með sigrinum kom Halmstad sér í þægilega fjarlægð frá botnsvæði deildarinnar en eiga þó ennþá fræðilega möguleika á að þurfa í umspil um að halda sæti sínu í deildinni. Gunnar er nú einn markahæstur í deildinni með 16 mörk þegar liðið á aðeins einn leik eftir af mótinu. Næstur á eftir Gunnari í markaskorun í Svíþjóð kemur Afonso Alves hjá Malmö með 14 mörk, Hasse Berggren hjá Elfsborg kemur þriðji með 13 mörk og Ailton hjá Örgryte er fjórði með 12 mörk. Óvænt úrslit urðu í sænsku deildinni í dag þegar Malmö sem er í 3. sæti tapaði fyrir Gefle sem með sigrinum kom sér af fallsvæði í deildinni. Þá gerðu Häcken og Kalmar 1-1 jafntefli en Kalmar er í 4. sæti deildarinnar á meðan Häcken er í 9. sæti. Djurgården, lið Kára Árnasonar og Sölva Ottesen stendur best að vígi þegar 2 umferðum er ólokið og er efst í deildinni með 49 stig. Gautaborg kemur næst með 46 stig en aðeins þessi tvö lið eiga möguleika á að hampa sænska meistaratitlinum.
Íslenski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Í beinni: Real Madrid - Espanyol | Þurfa að halda í við sjóðheita Börsunga Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju Eðla rölti inn á brautina á æfingu „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sjá meira