Sport

Markið læknaði sár Cissé

Franski sóknarmaðurinn Djibril Cissé hjá Liverpool virðist hafa gleymt óánægju sinni í herbúðum félagsins eftir að mark hans tryggði liðinu sigur á Blackburn í gær og hefur nú tekið stjóra sinn í sátt. Hann vandaði þó stuðningsmönnum Blackburn ekki kveðjurnar eftir leikinn. Cissé fótbrotnaði mjög illa í leik gegn Blackburn á síðustu leiktíð og stuðningsmenn liðsins sungu "Cissé glerfótur" fullum hálsi í stúkunni. Þetta reitti leikmanninn til reiði og sagðist hann eftir leikinn ætla að tileinka stuðningsmönnum Blackburn sigurmark sitt. Þá hefur hann að sögn tekið knattspyrnustjóra sinn Rafa Benitez í sátt og segist vilja vera áfram hjá Liverpool. "Mig langaði bara að sína öllum að það eru engin vandamál hjá okkur Rafa," sagði Cissé, en hann hélt því fram í vikunni að hann ætlaði að fara frá Liverpool ef hann fengi ekki að spila meira en hann hefur gert undanfarið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×