Sport

Keflavík kjöldró KR

Keflavíkurstúlkur völtuðu yfir stöllur sínar í KR í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöld 130-36. Þá unnu Grindavíkurstúlkur auðveldan 91-48 sigur á Breiðablik. María B. Erlingsdóttir var stigahæst í liði Keflavíkur í gær, með 28 stig á aðeins 19 mínútum, en Reshea Bristol skoraði 23 stig, gaf 17 stoðsendingar og stal 11 boltum á 23 mínútum. Þá skoraði Birna Valgarðsdóttir 21 stig. Í leik Grindavíkur og Breiðabliks, var Jerica Watson atkvæðamest hjá heimamönnum með 24 stig, 14 fráköst, 6 stoðsendingar og 5 stolna bolta, en Hildur Sigurðardóttir kom næst með 19 stig. Í liði Breiðabliks var Jessalyn Deveny bókstaflega allt í öllu, skoraði 29 stig og hirti 9 fráköst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×