Sport

Jol í vandræðum með Keane

NordcPhotos/GettyImages
Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, viðurkennir fúslega að það sé óréttlátt að maður eins og Robbie Keane skuli þurfa að sitja á varamannabekk liðsins leik eftir leik, en segir að í sínum augum sé hann hluti af byrjunarliði sínu. "Það er mjög erfitt að geta ekki haft Robbie í byrjunarliðinu um hverja helgi, því þó hann sé ekki alltaf í byrjunarliðinu, lít ég á hann sem slíkan. Ég get ekki haft hann, Jermain Defoe og Mido alla saman í framlínunni," sagði Jol, en mjög líklegt þykir að Keane fari frá Tottenham í janúar til að finna sér lið þar sem hann fær að spila meira.. Keane hefur skorað nokkur mjög mikilvæg mörk fyrir Tottenham á leiktíðinni, en hefur verið orðaður við önnur lið í úrvalsdeildinni. Hann á aðeins hálft ár eftir af samningi sínum við Tottenham.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×