Sport

Fjöldi leikja í UEFA bikarnum

Margir leikir verða á dagskrá í riðlakeppni Evrópukeppni félagsliða í kvöld og nokkrir eru þegar hafnir. Kristinn Jakobsson dæmir leik CSKA Moskvu og Marseille, sem er nýhafinn og er í beinni útsendingu á Eurosport. Þá eru Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar í eldlínunni, sem og nokkur ensk lið. Halmstad er nú að spila við Hertha Berlin á heimavelli sínum í Svíþjóð, en þar er staðan 0-0 eftir um klukkutíma leik. Middlesbrough sækir Grasshoppers heim og Bolton leikur við Besiktas.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×