Sport

Giggs fer í aðgerð

Ryan Giggs, leikmaður Manchester United, þarf að fara í aðgerð vegna kinnbeinsbrotsins sem hann hlaut í leiknum gegn Lille í Meistaradeildinni á þriðjudaginn og óvíst er hversu lengi kappinn verður frá keppni í kjölfarið, en það verða væntanlega nokkrar vikur. United er því án þeirra Giggs, Gabriel Heinze, Roy Keane og Gary Neville um þessar mundir, en þeir Louis Saha, Quinton Fortune og Wes Brown eru að ná sér af sínum meiðslum og einhver þeirra gæti verið orðinn klár í slaginn gegn Tottenham á laugardaginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×