Sport

Richardson semur við United

Kieran Richardson hélt upp á 21 árs afmæli sitt með því að skrifa undir nýjan samning við Manchester United og því er ljóst að hann verður hjá félaginu til ársins 2009. Richardson tryggði sér nýverið sæti í enska landsliðinu og sagðist ánægður að ná samningi við félagið. "Mér líður vel hjá Manchester United, hér vil ég vera og ég gæti ekki hugsað mér að spila með öðru liði," sagði hinn ungi og efnilegi leikmaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×