Sport

Henry segir Arsenal vanta menn

NordicPhotos/GettyImages
Thierry Henry, framherji Arsenal, segir að liðið vanti fleiri leikmenn og þá sérstaklega einhvern til að fylla skarð Patrick Vieira, ef það á að ná einhverjum árangri í vetur. Þær raddir gerast nú æ háværari að hann sé á förum frá Arsenal vegna óánægju með leikmannamál. "Það mikilvægasta var að láta fólk gleyma Patrick Vieira og reyna að ná góðri rispu til að ná Chelsea. Þetta hefur alls ekki tekist og án þess að vera að leita að afsökunum, held ég að það sé fyrst og fremst af því að okkur vantar mannsskap. Mörg lið í deildinni hafa landsliðsmenn á varamannabekk sínum og sumhver eru jafnvel með landsliðsmenn sitjandi upp í stúku. Þetta höfum við ekki og það vekur manni gremju," sagði fyrirliðinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×