Sport

Enn ein meiðslin hjá Villa

NordicPhotos/GettyImages
Wilfred Bouma, varnarmaður Aston Villa er meiddur á læri og verður frá í nokkrar vikur og eykur með því enn á meiðslavandann hjá mönnum David O´Leary, sem þegar hefur misst þá Jlloyd Samuel, Martin Laursen og Gary Cahill í erfið meiðsli. "Við erum í vandræðum með miðvarðarstöðurnar og vinstri bakvörðinn," sagði O´Leary. "Við höfum ekki efni á að missa fleiri leikmenn í meiðsli núna, það er á hreinu."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×