Sport

Burley farinn frá Hearts

NordicPhotos/GettyImages
Knattspyrnustjórinn George Burley hefur hætt störfum hjá úrvalsdeildarliðinu Hearts í Skotlandi, eftir að hafa verið í starfi í aðeins fjóra mánuði. Talið er að ástæðan sé ágreiningur milli hans og eigandans Vladimir Romanov, sem keypti félagið í febrúar. Þessi tíðindi koma flatt upp á alla leikmenn liðsins, sem og stuðningsmenn, því liðið er taplaust í efsta sæti deildarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×