Sport

Wenger rólegur yfir klúðri Pires

NordicPhotos/GettyImages
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sagðist í viðtali við BBC ekki hafa verið hrifinn af tilþrifum Robert Pires í dag, þegar hann klúðraði vítaspyrnu gegn Manchester City. Wenger á afmæli í dag og sagðist gjarnan hafa viljað eitthvað annað í afmælisgjöf en þetta. "Kannski var sjálfstraustið ekki alveg í lagi hjá honum af því hann var þegar búinn að taka eina vítaspyrnu í leiknum, en ég talaði við hann eftir leikinn og hann viðurkenndi að hafa gert mistök," sagði Wenger og bætti við að stigin þrjú væru það sem skipti mestu máli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×