Sport

Charlton í annað sætið

Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton lyftu sér í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar áðan, þegar þeir báru sigurorð af lánlausu liði Portsmouth á útivelli, 2-1. Charlton lenti undir í leiknum þegar Dario Silva skoraði fallegt mark á 13. mínútu, en Darren Ambrose og Dennis Rommendahl skoruðu tvö mörk á 15 mínútum í síðari hálfleiknum og skutu Charlton í annað sætið. Portsmouth er í 17. sæti deildarinnar með aðeins 7 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×