Sport

Góð helgi hjá Jóni og Loga

Jón Arnór lék ágætlega fyrir Napoli um helgina
Jón Arnór lék ágætlega fyrir Napoli um helgina NordicPhotos/GettyImages
Jón Arnór Stefánsson og Logi Gunnarsson gerðu ágæta hluti með liðum sínum á Ítalíu og í Þýskalandi um helgina. Jón Arnór skoraði 13 stig fyrir Napoli þegar það lagði Varese með ellefu stiga mun 94-83, en 18 stig Loga Gunnarssonar dugðu ekki fyrir Bayeruth þegar liðið tapaði fyrir Crailsheim með fjórum stigum, 74-70 í þýsku 2. deildinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×