Menning

Hrauntákn

Innsetning í dvergi. Halldór Ásgeirsson fremur gjörning í dag.
Innsetning í dvergi. Halldór Ásgeirsson fremur gjörning í dag.
Sýning myndlistarmannsins Halldórs Ásgeirssonar „Hrauntákn“ í sýningarýminu Gallerí Dvergi hefur verið framlengd. Sýningin var opnuð hinn 20. október í tengslum við grasrótarsýninguna Sequences. Halldór mun fremja gjörning í sýningarrýminu í dag kl. 18. og annan laugardag.

Sýningarýmið Gallerí Dvergur er í kjallara bakhúss að Grundarstíg 21 í Þingholtunum. Dvergur hefur verið starfræktur í nokkra mánuði á ári síðan 2002 og hafa verið haldnar þar alls 18 einkasýningar innlendra sem og erlendra listamanna, svo og tónleikar og vídeósýningar.

Ókeypis er inn og allir eru velkomnir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×