Íslenski boltinn

Fimm nefndir sem hugsanlegir eftirmenn

Formaðurinn og framkvæmdastjórinn Eggert Magnússon og Geir Þorsteinsson kynna ársskýrslu KSÍ.
Formaðurinn og framkvæmdastjórinn Eggert Magnússon og Geir Þorsteinsson kynna ársskýrslu KSÍ.
Eggert Magnússon hefur verið formaður Knattspyrnu-sambands Íslands síðan 1989. Undanfarnar vikur hefur hann farið fyrir hópi fjárfesta sem hefur reynt að eignast meirihluta hlutabréfa í enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham.

Hann hefur þegar staðfest að takist honum það muni hann láta af formennsku í KSÍ sem og hætta sem meðlimur í framkvæmdastjórn Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA.

Sú umræða hefur áður komist á kreik um hver tæki hugsanlega við formennsku KSÍ af Eggerti fari svo að hann hætti. Hún er nú komin aftur á fullt skrið í tengslum við þreifingar Eggerts í Englandi.

Nú eru fimm menn helst nefndir til sögunnar sem gætu haft áhuga og getu til að taka við embættinu. Þeir eru Halldór B. Jónsson, varaformaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, Jónas Kristinsson, formaður KR Sports, Guðni Bergsson, fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu og Gunnar Sigurðsson sem hefur lengi starfað í þágu knattspyrnunnar á Akranesi.

Fréttablaðið hafði samband við nokkra úr þessum hópi sem voru misviljugir að tjá sig um málið. Flestum fannst þeim ótímabært að koma þessu máli á yfirborðið þar sem Eggert er enn í starfi. Engu að síður vildi enginn beinlínis neita að áhugi viðkomandi væri fyrir hendi.

Gunnar Sigurðsson sagði að það gæti vel verið að hann hefði áhuga á starfinu. Hann var sjálfur lengi í stjórn KSÍ og þekkir því vel til starfans. „Þessi vettvangur er mér vel kunnugur. KSÍ hefur verið að vinna mjög spennandi starf og ég hefði áhuga á að taka þátt í því,“ sagði Gunnar.

Jónas Kristinsson hefur lengi starfað fyrir knattspyrnudeild KR og sinnt þar störfum í tuttugu ár. Hann þekkir því einnig afar vel til hreyfingarinnar og hefur þar að auki sterkar skoðanir á málefnum sem lúta að KSÍ.

Guðni er landsþekktur knattspyrnumaður og var lengi fyrirliði íslenska landsliðsins. Hann hefur hingað til ekki látið til sín taka á þessum vettvangi en áhugi hans á málefninu liggur í augum uppi. Þeir sem til þekkja segja hann efnilegan í starfið.

Geir og Halldór eru hátt settir í KSÍ í dag, Geir sem framkvæmdastjóri og Halldór sem varaformaður. Þeir hafa því báðir þá reynslu og þekkingu sem til þarf og þykja koma afar sterklega til greina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×