Síðkaþólskt gæðapopp 16. desember 2006 16:00 Einkar aðgengilegur kveðskapur en stendur langt að baki Lilju og Passíusálmunum. Stjörnur: 3
Lofsvert framtak að gefa út kveðskap Jóns Arasonar biskups. Kemur nú fyrsta sinni á bók í heild sinni - með vönduðum skýringum Kára Bjarnasonar og greinargóðum inngangi Ásgeirs Jónssonar. Rétt þó að hræða ekki lesandann: þótt næstum 500 ára sé er þetta einkar aðgengilegur kveðskapur, öllum auðskiljanlegur, jafnt orðfæri sem erindi, án nokkurrar þekkingar annarrar en barnaskólalærdóms í biblíusögum. Bara að skella sér útí og stíga á vatnið með Jesúsi og Jóni, maður flýtur einsog ekkert sé. Nú er vitaskuld átt við þann kveðskap sem eignaður er Jóni, því með fræðilegri fullvissu er hvergi stafur á bók (handriti) sannarlega Jóns. Óljóst ætternið klagar hinsvegar hvorki uppá Jón né kveðskapinn, báðum er búbót að hinum. Ekki síst er kveðskapnum hald í Jóni því sá síðarnefndi er vissulega þjóðhetja, lýðkær með eindæmum í lífi og eilífð, eiðsvarinn landi og þjóð, en vísast meiri dansari en skáld. Þó umfram allt: píslarvottur og tragísk hetja. Öxin geymir Arason í vitund þjóðarinnar, ekki orðið, og verður svo áfram þráttfyrir þessa ágætu bók. Dansari var Jón bæði í klassískum og „kúnderskum" skilningi („reyndur popúlisti" segir Ásgeir í inngangi - það er nánast kúnderski skilningurinn: sjálfsdýrð sviðsljóssins) og sté sporið í lífi og list Drottni sínum til framdráttar. Þá var hann tónlistar- og gleðimaður. Sér því stað í trúarkveðskap hans engu síður en þeim veraldlega - ekki alveg óskyldur því fagnaðarerindi sem sértrúarsöfnuðir nútímans nefna „í stuði með guði lög" - og fer vel á því að dilla sér í huganum undir lestri, jafnvel snúa sér í hring. Grínlaust: andlegur kveðskapur síðustu alda kaþólskunnar á Íslandi var nátengdur tónlist og dansi og sjálft helgihaldið rokkandi fjörugt. Rök hníga að því. (Danakóngur og Lúter gáfu síðan andskotanum einkarétt á syndinni og saman kváðu þeir dansinn í kútinn svo kirfilega að ekki mátti sletta úr klaufinni uppí vindinn í hafátt að Bessastöðum & biskupum vorum siðbættum um aldir ánþess að brenna í Víti og Höfn fyrir vikið, bækur og menn. Sígild söguskýring). Önnur saga. Öll gætu þessi kvæði í upphafi hafa verið danslagatextar og alveg óvíst að höfundur hafi litið á sig sem „skáld" (og alls ekki í hátíðlegum skilningi). Því gerir hann - að aldasið - hvorki tilraun til sjálfstæðrar úrvinnslu efnisins né áberandi skáldlegra tilþrifa: hann einfaldlega færir heilaga ritningu í sönghæfan dansbúning - og gerir það svo átakalaust að enn má njóta með öllum kropp. Ekki misskilja mig: Jón var vitaskuld einlægur trúmaður og ákall hans til Drottins ekkert grín. Trú kvæðanna er og verður þeirra aðall, þeim sem á trúa. En hvernig sem menn reyna að fara að því að bæta sér upp ládeyðu „miðaldarinnar" (ca 1350-1650), „brúa bilið", „rjúfa ekki samhengið", rekast menn alltaf vængjalausir á sama búkolluvegginn: allur varðveittur kveðskapur tímabilsins stendur - að skáldskapargildi - Lilju Eysteins og Passíusálmum Hallgríms óralangt að baki. Sjálfsagt í lofsverðri útgáfu um (meintan) kveðskap Jóns Arasonar að leiða rök að öðru með öllum mögulegum bolum, enda bera þeir Ásgeir og Kári sig mannalega í þeim ójafna skessuleik. Orðan fellur, úti er þetta fræði. Amen. Amen! Endir verður á kvæði (105). Þannig slær biskupinn botn í sinn söng ... (stappaði niður fótunum og sneri sér í hröng?). Sigurður Hróarsson
Mest lesið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Myndasyrpa úr Bakgarðshlaupinu Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira