Sport

Jörundur tilkynnir byrjunarliðið gegn Englendingum

Íslensku stelpurnar mæta sterku liði Englendinga á Carrow Road í Norwich í kvöld
Íslensku stelpurnar mæta sterku liði Englendinga á Carrow Road í Norwich í kvöld E.Ól

Jörundur Áki Sveinsson hefur nú tilkynnt byrjunarlið Íslands sem mætir Englendingum í vináttuleik í Norwich í kvöld. Þóra B. Helgadóttir mun þar taka við fyrirliðabandinu af systur sinni Ásthildi, sem getur ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla.

Byrjunarliðið er skipað eftirtöldum leikmönnum:

Þóra B Helgadóttir stendur í markinu. Í vörninni verða Ólína G. Viðarsdóttir, Guðlaug Jónsdóttir, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir og Dóra Stefánsdóttir. Katrín Jónsdóttir, Edda Garðarsdóttir og Olga Færseth verða á miðjunni, Dóra María Lárusdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir verða á köntunum og Margrét Lára Viðarsdóttir verður ein í fremstu víglínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×