Allt sem einhverju skiptir 16. febrúar 2007 10:00 Tvær listakonur, sautján leikarar og einn myndlistarmaður Kristín Eiríksdóttir og Ingibjörg Magnadóttir.
Ást, kynlíf, dauði, guð og allt hitt sem skiptir máli er viðfangsefni gjörningaleikhúsverks Ingibjargar Magnadóttur og Kristínar Eiríksdóttur sem sanna hið fornkveðna að fæstir eru spámenn í eigin föðurlandi. Undirvitundargjörningar þeirra Kristínar og Ingibjargar vöktu talsverða athygli á sýningunni Pakkhúsi postulanna í Hafnarhúsinu í haust og nú hafa þær stöllur söðlað um og setja upp verkið „I'm crying everyones tears - King of Sorrow" í hinu sænska Teater Lilith í Malmö og verður verkið frumsýnt á morgun. Kristín og Ingibjörg eru báðar menntaðir myndlistarmenn og hafa fengist við skriftir en samstarf þeirra á sviði gjörningalistarinnar hefur verið farsælt í tæp tvö ár. Sýningin nú er þó hin viðamesta til þessa og þegar þær hafa lagt Svíaríki undir sig er komið að meginlandi Evrópu því næsta verkefni verður sett upp í Berlín á mars. „Þetta er verk um lífið, ástina, kynlífið, dauðann og guð, um það að draga andann," útskýrir Ingibjörg. „Það er um alla þessa yndislegu þætti og það mætti segja að þetta væri klassískt verk sem endist vel því þótt við vitum auðvitað ekki hvort þessir þættir eigi eftir að halda áfram að skipta öllu máli þá treystum á það." Ingibjörg útskýrir að auðvelt sé að rekja verk þetta saman við þeirra fyrri sýningar en þetta sé þó sígildasta verk þeirra hingað til. Þær Ingibjörg og Kristín kynntust aðstandendum Lilith-leikhússins á myndlistarhátíðinni Sequences í október og fá nú þann heiður að setja upp fyrstu gjörningaleikhússýningu þeirra á nýju sviði sem sérstaklega er ætlað fyrir það listform. Teater Lilith var stofnað árið 2001 og starfar á vettvangi bæði leik- og myndlistar en nú gefst erlendum listamönnum kostur á að nýta sér æfinga- og sýningaraðstöðu hússins sem teljast verður sjaldgæft tækifæri fyrir listafólk. Teater Lilith er jafnframt vettvangur fyrir myndlistarsýningar, fyrirlestrahald, tónleika og aðrar uppákomur. Að draga andann. Nýtt íslensk gjörningaleikhúsverk verður frumsýnt í Svíþjóð.Mynd/teater lilith Ingibjörg útskýrir að þær Kristín eigi því ekki að venjast að fá svo mikla hjálp við listsköpun sína en Teater Lilith framleiðir sýninguna og sér um alla umgjörð hennar. „Við höfum vanalega fengið vini og kunningja til þess að taka þátt í sýningunum okkar en nú vorum við bara með áheyrnarprufur," útskýrir Ingibjörg. Sautján leikarar taka þátt í uppfærslunni auk höfundanna tveggja og Ásmundar Ásmundssonar myndlistarmanns sem endurskapar vídeóverk sitt á rauntíma á sviðinu og leikur nokkur aukahlutverk. Svíar hafa tekið þeim stöllum opnum örmum og hafa þarlendir fjölmiðlar til dæmis sýnt þeim mikinn áhuga að undanförnu. Ingibjörg útskýrir að þær vonist til þess að geta sýnt verkið hér heima en til þess þyrftu þær öflugt liðsinni því ekki sé hlaupið að því að koma uppfærslu sem þessari á hvaða fjalir sem er. Þær skora því á forsvarsmenn og leikhúsáhugafólk hér heima að kynna sér verkefnið og rýma húsakynni sín fyrir þessari nýju og óvenjulegu leikhúsreynslu.
Mest lesið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira