Einstakir hljóðskúlptúrar og nýr hljóðheimur 23. maí 2007 08:00 Nýr hljóðheimur og heimspekilegar vangaveltur um jarðneskt líf Ríkharður H. Friðriksson, Kirsten Galm, Egill Ólafsson og Gunnar Kristinsson leika á Listahátíð.
Það er engin leið að lýsa því sem tónleikagestir eiga von á í Hallgrímskirkju í kvöld. Þar sameinast kraftar tveggja af voldugustu hljóðfærum landsins, Klais-orgelsins og slagverkssafns Gunnars Kristinssonar, að viðbættum raddböndum Egils Ólafssonar og annarlegum gítartónum. Tónleikar Icelandic Sound Company eru liður í Listahátíð í Reykjavík en dúóið Gunnar Kristinsson slagverksleikari og Ríkharður H. Friðriksson gítarleikari hefur að þessu sinni fengið til liðs við sig listamanninn Egil Ólafsson og orgelleikarann Kirsten Galm. Tónlist sveitarinnar, sem starfað hefur um nokkra hríð en aldrei leikið í Reykjavík áður, einkennist af frjálsum spuna en í tilefni staðsetningarinnar verður músíkin formfastari en áður því að á tónleikunum verður lagt út af messuforminu.Magna hljómbrigðin„Þetta er óvenjuleg hljóðfæraskipan, óvenjuleg staðsetning, óvenjuleg músík og óvenjulegur texti,“ útskýrir Egill Ólafsson kíminn. „Ég held að ég geti fullyrt að þessi hljóðfæraskipan sé einsdæmi, og þetta er miklu meira en bara slagverk, gítar, söngur og orgel.“ Sérstaða ISC felst ekki síst í notkun á tölvum og hljóðbreytitækjum sem galdra og magna öll þau hljómbrigði sem kunnáttumenn geta framkallað úr hljóðfærunum. Þannig eru upphaflegir möguleikar hljóðfæranna notaðir til fulls en verða um leið stökkpallur fyrir frekari vinnslu. Slagverkssafn Gunnars er víðfrægt og líklega einstætt á heimsvísu, því þar er áherslan lögð á gong og tam-tam hljóðfæri sem skipta mörgum tugum. Hann hefur leikið á ásláttarsafn sitt á tónleikum vítt og breitt um Evrópu en síðast heyrðist í því í Reykjavík fyrir aldarfjórðungi og nú hefur það líka stækkað til muna. „Það er heldur ekki rétt og sanngjarnt að tala bara um gítar þegar Ríkharður á í hlut,“ áréttar Egill því víst er að þar er enginn hefðbundinn strengjasláttur á ferð . Íslendingarnir þrír hafa allir verið viðloðandi músík um árabil. Gunnar er búsettur í Sviss og þar hefur sveitin haft sitt varnarþing en Gunnar starfar þar jöfnum höndum við tónlist og myndlist. Ríkharður hóf feril sinn í rokkinu en lærði síðar tónsmíðar. Hann kennir einnig tölvutónlist við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskóla Kópavogs. Orgelleikarann fengu þeir félagar úr kantorsstól Universitätskirche í Freiburg í Þýskalandi. Egill og Kirsten Glam komu fram á tónleikum með ISC þar í borg í fyrra og vöktu mikla lukku og fyrir dyrum stendur að sá fyrrnefndi komi á ný fram með þeim á kirkjulistahátíð í haust. Á veraldlegum nótumEgill segir að tónlistin sé spuni í grunninn og hópurinn hefur líkt verkefninu við eins konar hljóðskúlptúra. „Við styðjumst við messuformið en erum á veraldlegum nótum í textunum; þeir eru byggðir upp á svipaðan hátt og hefðbundinn messutexti,“ segir hann og vísar til yfirskrifta messuhlutanna eins og iðrunar, játningar og fyrirgefningar. Egill hefur skrifað út lagboða og samið nýjan texta fyrir þessa tónleika en framlag hinna verður spunakenndara. Textinn felur í sér heimspekilegar vangaveltur um vort jarðneska líf en blandast síðan hljóðmyndum sveitarinnar og stemningu hússins. Hlustað með opnum hugaEgill segir að þeir verði djarfir við að blanda saman stíltegundum á tónleikunum. „Menn munu heyra tónlist með nýjum formerkjum og alveg tónal-músík í dúr og moll. Eitt sinn var mikill ótti við að blanda þessu of mikið saman en við erum óhræddir við það enda held ég að í seinni tíð sé formið farið að skipta minna máli en útkoman,“ segir hann. Hallgrímskirkja er verðugur vettvangur fyrir þessa nýsköpun listamannanna. „Þetta er líka alveg makalaust hljóðfæri, þetta orgel,“ segir Egill sannfærandi þegar talið berst að staðsetningunni. „Tónlistin mun síðan bara flæða um Skólavörðuholtið. Ég held að fólk ætti bara að mæta með opnum huga og taka á móti nýjum hljóðheimi – þetta verður vissulega hljóðheimur sem menn heyra ekki á hverjum degi,“ segir Egill að lokum. Aðeins einir tónleikar eru fyrirhugaðir að þessu sinni og hefjast þeir í Hallgrímskirkju kl. 20 í kvöld. Hægt er að nálgast aðgöngumiða á heimasíðu Listahátíðar en nánari upplýsingar og tóndæmi með sveitinni má finna á heimasíðu hennar www.isc.is. kristrun@frettabladid.is
Mest lesið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira