Fótbolti

Þjóðarstoltið rifið upp

Myndbandið eykur einnig samheldni en mórallinn í liðinu er frábær, að sögn Sigurður.
Myndbandið eykur einnig samheldni en mórallinn í liðinu er frábær, að sögn Sigurður. fréttablaðið/hörður

Þjálfari kvennalandsliðsins beitir skemmtilegri aðferð til að peppa stelpurnar upp. „Við gerum þetta fyrir alla leiki,“ sagði Sigurður um myndband sem hann sýnir daginn fyrir leik og rétt fyrir upphafsspyrnuna.

„Þetta er orðið hluti af undirbúningi liðsins. Ég er með myndbrot úr íslenskum fótbolta, nú síðast reyndar bara frá kvennalandsliðinu. Það er ætlunin með þessu að kveikja á þjóðarstoltinu, sem reyndar er mikið fyrir. Þetta hefur gefist vel,“ sagði Sigurður en hádramatísk tónlist er undir myndunum sem kveikja neistann í leikmönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×