Fótbolti

Þrír efstir og jafnir með 7

Daði Lárusson, markmaður Íslandsmeistara FH, Baldur Sigurðsson miðjumaður Keflvíkinga og Víkingsmarkmaðurinn Bjarni Þórður Halldórsson eru efstir í einkunnagjöf Fréttablaðsins eftir sex umferðir. Þeir hafa allir spilað mjög vel í sumar og verið lykilmenn í sínum liðum.
Daði Lárusson, markmaður Íslandsmeistara FH, Baldur Sigurðsson miðjumaður Keflvíkinga og Víkingsmarkmaðurinn Bjarni Þórður Halldórsson eru efstir í einkunnagjöf Fréttablaðsins eftir sex umferðir. Þeir hafa allir spilað mjög vel í sumar og verið lykilmenn í sínum liðum. Fréttablaðið/valli/víkurfréttir/vilhelm

Að loknum sex umferðum í Landsbankadeild karla eru Íslandsmeistarar FH á toppi deildarinnar. Einn leikmaður þeirra er efstur ásamt tveimur öðrum í einkunnagjöf Fréttablaðsins en það kemur kannski á óvart að það er Daði Lárusson markmaður. Taflan hér til hægri sýnir lista yfir 50 efstu leikmenn í einkunnagjöf Fréttablaðsins eftir sex umferðir. Skilyrði var að leikmennirnir hefðu spilað fjóra leiki eða fleiri.



Daði hefur líklega fengið markmanna minnst að gera sökum ógnarsterkrar FH-varnarinnar en það verður ekki tekið af Daða að hann hefur verið frábær. Daði hefur aðeins fengið á sig þrjú mörk í leikjunum sex, tvö þeirra komu í fyrstu umferðinni gegn ÍA og eitt gegn Keflavík. Fjórum sinnum hefur Daði haldið hreinu.



Mývetningurinn Baldur Sigurðsson hefur átt hvern stórleikinn á fætur öðrum á miðjunni hjá Keflvíkingum. Suðurnesjamenn hafa spilað leiftrandi skemmtilega knattspyrnu og hefur Baldur verið sem kóngur á miðjunni hjá vel mönnuðu Keflavíkurliði. Baldur hefur skorað tvö mörk í leikjunum sex.



Bjarni Þórður Halldórsson er í láni hjá Víkingum frá Fylki. Hann hefur þurft að hirða boltann úr netmöskvunum sex sinnum í sumar. Bjarni hefur tvisvar haldið marki sínu hreinu, í þrígang hefur hann fengið eitt mark á sig. Það var gegn Fylki, KR og Breiðablik en hann fékk á sig þrjú mörk í síðustu umferð gegn Val.



Íslandsmeistarar FH eiga fjóra leikmenn á topp tíu listanum en auk Daða eru þar Matthías Guðmundsson, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson og Freyr Bjarnason. Alls eiga Íslandsmeistararnir níu leikmenn á topp 50 listanum hér til hægri.



Keflavík og Breiðablik eiga alls átta leikmenn á listanum en Valur sjö. Fram á fimm leikmenn, þar á meðal þrjá neðstu mennina á listanum. Hin fimm liðin í deildinni, Fylkir, Víkingur, HK, ÍA og botnlið KR eiga öll þrjú menn á listanum yfir hæstu meðaleinkunina.



Þrír leikmenn hafa skorað fjögur mörk í Landsbankadeildinni í sumar, Matthías Guðmundsson, Tryggvi Guðmundsson og Magnús Páll Gunnarsson. Matthías er sá eini þeirra sem er á topp tíu listanum, hann er í fjórða sæti. Tryggvi er í sæti númer 24 og Magnús númer 31.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×