Fótbolti

Gæti dæmt í Meistaradeildinni

Kristinn Jakobsson fær vonandi spennandi verkefni á næstu misserum.
Kristinn Jakobsson fær vonandi spennandi verkefni á næstu misserum. MYND/Daníel

Kristinn Jakobsson dómari var í vikunni færður upp um flokk hjá dómaranefnd Knatstpyrnusambands Evrópu og er nú kominn í næstefsta flokk dómara.

„Nú er ég kominn í þann hóp sem heitir Premier en úr þeim hópi eru valdir þeir sem dæma stærstu leikina hverju sinni. En þeir sem eru samt ekki valdir fá engu að síður stóra leiki, eins og í riðlakeppni Meistaradeildarinnar sem og stærri leiki í UEFA-bikarkeppninni og forkeppnum EM og HM,“ sagði Kristinn.

Hann er því kominn á næsta þrep og segir hann sjálfur að hann hafi lengi beðið eftir þessu tækifæri. „Ég hef alltaf sagt að minn tími myndi koma en ég hef oft séð dómara frá stóru löndunum sem hafa verið á svipaðri leið og ég vera tekna fram yfir mig í þennan hóp. Það hefur kannski ekki alltaf verið sanngjarnt.“

Hann veit ekki hvaða leik hann mun dæma næst á alþjóðavettvangi en athyglisvert verður að fylgjast með hvaða leiki hann mun til að mynda fá að dæma í næstu umferðum undankeppni EM 2008. Hann hefur þegar tvívegis dæmt leiki í þeirri keppni á þessu ári, leik Póllands og Aserbaídsjan annars vegar og Búlgaríu og Hvíta-Rússlands hins vegar.

„Þetta er fyrst og fremst viðurkenning á því starfi sem við höfum verið að vinna og vonandi stöndum við undir því,“ sagði Kristinn. Ásamt því að fá stærri leiki sjálfur mun hann útvega öðrum íslenskum dómurum eftirsóknarverð störf þar sem hann mun taka með sér íslenska aðstoðardómara í sína leiki.

„Þegar íslenskur dómari fær verkefni kemur það í hlut KSÍ í samráði við viðkomandi dómara að velja dómarateymið allt,“ sagði Kristinn. „Nú er ekkert annað að gera en að krossa fingur og bíða eftir úthlutun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×