Fótbolti

Platini afhendir bikarinn

Michel Platini kemur til Íslands í tengslum við Evrópumótið.
Michel Platini kemur til Íslands í tengslum við Evrópumótið. NordicPhotos/Getty

Það verður sjálfur forseti UEFA, Michel Platini, sem afhendur sigurlaunin í úrslitakeppni Evrópumóts undir 19 ára kvenna sem hefst hér á landi á morgun.

Þrír leikir hefjast kl. 16.00 en fjórði leikurinn, á milli Íslands og Noregs, hefst kl. 19.15 á Laugardalsvelli. Platini verður viðstaddur úrslitaleikinn og afhendir nýbökuðum Evrópumeisturum gullið og bikarinn.

Úrslitaleikurinn sjálfur fer fram á Laugardalsvelli 29. júlí og verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Eurosport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×