Stofuspjall um Kraftbirtíngarhljóm guðdómsins 21. febrúar 2007 15:02
Sunnudaginn 25. febrúar kl. 16.00 er komið að öðru stofuspjalli ársins í tengslum við verk mánaðarins á Gljúfrasteini sem að þessu sinni er skáldsagan Heimsljós. Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur stýrir spjallinu og mun hún einkum beina sjónum sínum að Kraftbirtíngarhljómi guðdómsins, fyrsta hluta sögunnar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Steinunn ætlar að velta fyrir sér hvað einkenni Kraftbirtíngarhljóminn sem bernskulýsingu og muninum á því hvernig Halldór nálgast viðfangsefni sín í þessu fyrsta bindi Heimsljóss og síðari hlutum verksins. Saga sálarinnar hjá skáldinu Ólafi Kárasyni og fléttan við þjóðarsálina og þjóðskáldin, ekki síst Halldór Laxness sjálfan, er Steinunni einnig hugleikin. Gestir eru hvattir til að velja uppáhalds línurnar sínar úr Kraftbirtíngarhljómi guðdómsins, lesa þær upp og segja í stuttu máli frá því hvað sé svona heillandi við þessar línur. Enn fremur væri gaman að heyra ef einhverjir eiga sérstaka sögu um hvernig þeir komust fyrst í tæri við Heimsljós og hvaða áhrif bókin hafði á þá.
Mest lesið Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Myndasyrpa úr Bakgarðshlaupinu Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira