Fótbolti

Tap fyrir Ítalíu

Íslenska kvennalandsliðið tapaði í kvöld 2-1 fyrir því ítalska í fyrsta leik sínum í Algarve bikarnum sem fram fer í Portúgal. Ítalska liðið skoraði sigurmarkið í uppbótartíma, en áður hafði Margrét Lára Viðarsdóttir jafnað leikinn úr vítaspyrnu. Þetta var fyrsti leikur íslenska liðsins undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar.

Heimamenn Portúgalar og Írar leika með íslenska lðinu í  riðli á mótinu, en þessi lið skildu jöfn 1-1 í kvöld. Íslenska liðið leikur næst við Íra á föstudaginn.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×