Fótbolti

Kolbeinn skoraði fernu í sigri Íslands

Framherjinn Kolbeinn Sigþórsson skoraði fjögur mörk fýrir íslenska U-17 ára landsliðið sem lagði það rússneska af velli, 6-5, í undanriðli fyrir Evrópukeppnina í þessum aldurslokki. Íslendingar tryggðu sér þar með efsta sætið í undanriðlinum, hlutu alls fimm stig í þremur leikjum og tryggðu sér þáttökurétt í lokakeppni EM.

Kolbeinn, sem spilar með HK, skoraði öll sín mörk í fyrri hálfleik en íslenska liðið komst í 6-0 með marki frá Aaron Palomares á 42. mínútu. Rússar áttu hins vegar magnaða endurkomu, skoruðu næstu fimm mörk og mátti litlu muna að þeir næðu að jafna metin. Frans Elvarsson skoraði einnig fyrir íslenska liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×