Fótbolti

Átta Valsstúlkur í landsliðshópnum

Mynd/Vilhelm

Sigurður Ragnar Eyjólfsson kvennalandsliðsþjálfari valdi í dag hóp sinn fyrir vináttuleikinn gegn Englendingum á Roots Hall þann 17. maí næstkomandi. Íslandsmeistarar Vals eiga áberandi flesta fulltrúa í hópnum.

Þær Katrín Jónsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Dóra María Lárusdóttir, Ásta Árnadóttir, Rakel Logadóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir, Guðbjörg Gunnarsdóttir og Sif Atladóttir koma þannig allar úr Valsliðinu. KR á þrjá fulltrúa í landsliðinu, þær Eddu Garðarsdóttur, Katrínu Ómarsdóttur og Ólínu Viðarsdóttur.

Greta Mjöll Samúelsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir koma frá Breiðablik, Erla Steina Garðarsdóttir frá Jersey Sky Blue frá Bandaríkjunum, Ásthildur Helgadóttir frá Malmö, Þóra Björg Helgadóttir frá Leuven í Belgíu og Helga Sjöfn Jóhannesdóttir kemur úr röðum Stjörnunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×