Fótbolti

Íslenska landsliðið upp um eitt sæti á lista FiFA

MYND/Vilhelm

Íslenska landsliðsið í knattspyrnu er í 96. sæti á nýjum styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun. Liðið fer upp um eitt sæti frá því í síðasta mánuði.

Heimsmeistarar Ítala eru líkt og í síðasta mánuði efstir á listanum en Brasilíumenn og Argentínumenn hafa sætaskipti í 2. og 3. sæti. Þar á eftir koma Frakkar, Þjóðverjar og Hollendingar en efstir Norðurlandaþjóða eru Svíar og Danir í 22. og 23. sæti. Þá eru Skotar í 14. sæti en þeir hafa ekki verið ofar á listanum síðan honum var komið á fót árið 1993.

Þegar horft er til ársins eru Írar og Norður-Írar mestu hástökkvararnir á listanum en þeim hefur vegnað vel í undankeppni Evrópumóts landsliða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×