Fótbolti

Ísland - Liechtenstein: 1-0 í hálfleik

AFP ImageForum

Það er komið hlé í leik íslands og Liechtenstein. Staðan er 1-0 og var það Brynjar Björn Gunnarsson sem skoraði markið með skalla á 27. mínútu eftir aukaspyrnu frá Emil Hallfreðssyni. Íslenska liðið var þó ekki sannfærandi eftir markið og skapaði lítið af færum.

Þar ber helst að nefna færi sem að Eiður Smári fékk á 44. mínútu en náði ekki að skora. Skömmu eftir markið fengu Liechtensein gott færi þar sem að Árni Gautur varði vel. Skömmu síðar sluppu íslendingar með skrekkin þegar langskot Liechtensteina hafnaði í slánni og fór svo yfir markið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×