Fótbolti

Úrslit leikja í 1. deild

Guðjón Baldvinsson skoraði tvö mörk gegn Fjarðarbyggð
Guðjón Baldvinsson skoraði tvö mörk gegn Fjarðarbyggð MYND/Heiða Helgadóttir

Tveir leikir fóru fram í 1. deild karla í dag. Fjarðarbyggð beið lægri hlut fyrir Stjörnunni á heima velli, 0-2. Guðjón Baldvinsson skoraði bæði mörk Stjörnunnar og voru þetta fyrstu mörkin sem Fjarðarbyggð fær á sig.

ÍBV sigraði KA í Eyjum 1-0 og var það Jonah Long sem skoraði markið.

Grindavík situr á toppi deildarinnar með 17 stig eftir sjö leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×