Íslenski boltinn

Frábær sigur á Serbum

Mynd/E.Ól
Leik íslenska kvennalandsliðsins við Serba lauk rétt í þessu með stórsigri íslenska liðsins, 5-0. Leikurinn fór fram í blíðskaparveðri á Laugardalsvellinum. Um 6000 manns áhorfendur sátu leikinn. Leikurinn var liður í undankeppni EM og hefur íslenska liðið nú unnið þrjá fyrstu leiki sína í riðlinum.

Mörkin:

Dóra Stefánsdóttir 1-0. 3 mín

Dóra María Lárusdóttir 2-0. 23 mín

Katrín Jónsdóttir 3-0. 57 mín

Margrét Lára Viðarsdóttir 4-0. 81 mín

Sjálfsmark 5-0. 86 mín



Fleiri fréttir

Sjá meira


×