Íslenski boltinn

Valsmenn voru sjálfum sér verstir

Valur tapaði í gær fyrir írska liðinu Cork City, 2-0, á Laugardalsvellinum. Liðin mætast á nýjan leik á Írlandi um næstu helgi og ljóst að þar verður róður Valsliðsins afar þungur. Skelfileg mistök Valsmanna, bæði hjá markverði og í sókn, urðu liðinu að falli.

Valsmenn urðu fyrir miklu áfalli strax á fimmtu mínútu leiksins er gestirnir komust yfir. Rene Carlsen gaf Írunum hornspyrnu að óþörfu og úr henni kom markið. Boltinn kom inn á teig og hætti Kjartan Sturluson markvörður sér út í langt úthlaup og kýldi boltann fram. Boltinn barst þá á miðjumanninn Colin O'Brien sem lét vaða að marki og hafði boltinn viðkomu í varnarmanni Vals áður en hann hafnaði í netinu. Kjartan var ekki búinn að ná sinni stöðu aftur við marklínuna.

Á 33. mínútu átti sér stað ótrúlegt atvik. Valsmenn fengu horn og úr því náði Dennis Bo Mortensen að skalla að marki og var boltinn á leiðinni inn. Helgi Sigurðsson tók hins vegar boltann og stýrði honum yfir markið. Þetta var fyrsta marktilraun Valsmanna í leiknum og argasta synd að nýta hana ekki betur.

Ekki mikið meira markvert gerðist í fyrri hálfleik en leikurinn einkenndist fyrst og fremst af baráttu en þó verður að segjast að Írarnir vörðust vel.

Greinilegt var að leikmenn Vals fengu vænt tiltal í hálfleik því þeir komu mun sprækari til leiks í síðari hálfleik.

En það fjaraði fljótlega undan því og aftur gerði vör við sig þessi sama stöðubarátta og var í fyrri hálfleik.

Á 65. mínútu komust leikmenn Cork City í sókn. Barry Smith braut af sér á hættulegum stað og Írum var dæmd aukaspyrna. Liam Kearney tók spyrnuna og stefndi boltinn á markið. Kjartan var hins vegar vel staðsettur og virtist engin hætta á ferð. En hann gerði þau skelfilegu mistök að slá boltann í eigið mark. Það er óvenjulegt í hæsta máta að sjá markvörð eins og Kjartan gera tvenn svo skelfileg mistök í einum og sama leiknum.

Þar með komu Írarnir sér í afar þægilega stöðu og ljóst að róðurinn verður þungur á Írlandi þar sem Cork City er yfirleitt mjög erfitt heim að sækja. Möguleikar Vals á að komast áfram í næstu umferð verða að teljast litlir sem engir.

Fáir leikmenn Vals áttu góðan leik í gær. Þeim gekk afar illa að byggja upp hættulegar sóknir og varnarleikurinn var á köflum ekki góður. Írarnir voru þó ekki það góðir að lið eins og Valur á hæglega að geta unnið þá, sérstaklega á heimavelli.

eirikur@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×