Íslenski boltinn

Valur fær FH í heimsókn í VISA-bikarnum

Nær Willum Þór að stjórna Valsmönnum aftur til sigurs gegn FH?
Nær Willum Þór að stjórna Valsmönnum aftur til sigurs gegn FH? Mynd/Stefán Karlsson

Dregið var í hádeginu fyrir VISA-bikarinn í knattspyrnu. Dregið var í 8-liða úrslit karla og undanúrslit kvenna. Knattspyrnuáhugamenn fá að sjá stórleiki hjá báðum kynjum því að í karlaboltanum mætir Valur FH á heimavelli og í kvennaboltanum fer KR í Kópavoginn og etur kappi við Breiðablik.

 

Drátturinn:

8-liða úrslit karla:

Valur - FH

Fylkir - ÍA

Fjölnir - Haukar

Breiðablik - Keflavík

Undanúrslit kvenna:

Breiðablik - KR

Fjölnir - Keflavík

8-liða úrslit karla fara fram 12. og 13 ágúst, en báðir undanúrslitaleikir kvenna fara fram 21. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×