Fótbolti

Ísland steinlá fyrir Noregi

Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum yngri en 19 ára steinlá í kvöld 5-0 fyrir Norðmönnum í opnunarleik sínum í A-riðli á Evrópumótinu. Íslenska liðið fékk á sig tvö mörk skömmu fyrir leikhlé og eftir það var róðurinn þungur á Laugardalsvellinum. Þjóðverjar lögðu Dani 1-0 í þessum sama riðli í dag.

Í B-riðli unnu Frakkar 1-0 sigur á Spánverjum í dag og Pólverjar og Englendingar skildu jafnir 1-1. Íslenska liðið mætir því Danska í næsta leik sínum í A-riðli á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×