Íslenski boltinn

Eyjólfur búinn að tilkynna landsliðshópinn gegn Kanada

Eyjólfur Sverrisson hefur tilkynnt 18 manna landsliðshóp sinn fyrir vináttuleikinn gegn Kanada sem fer fram þann 22. ágúst á Laugardalsvellinum. Athygli vekur að Valsmennirnir Helgi Sigurðsson og Baldur Aðalsteinsson hafa verið kallaðir í hópinn, en þeir hafa staðið sig vel í Landsbankadeildinni í sumar. Davíð Þór Viðarsson og Ragnar Sigurðsson eru nýliðar í hópnum og þá er Jóhannes Karl Guðjónsson valinn aftur í hópinn eftir frí.

Hópurinn:

Daði Lárusson FH

Fjalar Þorgeirsson Fylkir

Hermann Hreiðarsson Portsmouth

Brynjar Björn Gunnarsson Reading

Helgi Sigurðsson Valur

Jóhannes Karl Guðjónsson Burnley

Ívar Ingimarsson Reading

Kristján Örn Sigurðsson Brann

Grétar Rafn Steinsson AZ Alkmaar

Veigar Páll Gunnarsson Stabæk

Hjálmar Jónsson IFK Gautaborg

Kári Árnason AGF Arhus

Gunnar Heiðar Þorvaldsson Hannover 96

Emil Hallfreðsson Reggina

Matthías Guðmundsson FH

Baldur Ingimar Aðalsteinsson Valur

Davíð Þór Viðarsson FH

Ragnar Sigurðsson IFK Gautaborg

Miðasala á leikinn hefst í dag á Midi.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×