Íslenski boltinn

Þróttur R. á topp 1. deildar

Þróttarar eru komnir á topp 1. deildar.
Þróttarar eru komnir á topp 1. deildar. Mynd/Daníel R.

Þróttur R. komst í kvöld á topp fyrstu deildarinnar með góðum sigri á heimavelli gegn Víking Ó. Leikurinn var markalaus lengi vel áður en Hjörtur Hjartarson kom Þrótturum yfir á 83. mínútu og það var svo Adolf Sveinsson sem tryggði sigurinn á lokamínútum leiksins. Þróttarar eru því efstir í deildinni með 37 stig eftir 16 leiki en Grindavík er í öðru sæti með 35 stig eftir 15 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×