Fótbolti

KR bikarmeistari kvenna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Olga Færseth, fyrirliði KR, með sigurlaunin í dag.
Olga Færseth, fyrirliði KR, með sigurlaunin í dag. Mynd/E. Stefán

KR varð í dag bikarmeistari kvenna í knattspyrnu eftir 3-0 sigur á Keflavík í úrslitaleik.

Nokkuð jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en eftir að KR skoraði fyrstu tvö mörkin í leiknum með skömmu millibili komust Keflvíkingar nánast aldrei aftur í takt við leikinn.

Olga Færseth skoraði fyrsta mark leiksins en Hrefna Huld Jóhannesdóttir hin tvö.

Fylgst var með leiknum hér á Vísi.

Byrjunarlið Keflavíkur: 1 Jelena Petrovic, 2 Inga Lára Jónsdóttir, 3 Björg Ásta Þórðardóttir, 4 Björg Magnea Ólafs, 5 Anna Rún Jóhannsdóttir, 6 Guðný Petrína Þórðardóttir, 7 Lilja Íris Gunnarsdóttir, 8 Beth Anna Ragdale, 9 Danka Podovac, 10 Una Matilda Harkin og 11 Vesna Smiljkovic.

Bikarmeistarar KR 2007.Mynd/E. Stefán

Byrjunarlið KR: 1 Íris Dögg Gunnarsdóttir, 2 Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, 3 Olga Færseth, 4 Edda Garðarsdóttir, 5 Agnes Þóra Árnadóttir, 6 Hólmfríður Magnúsdóttir, 7 Alicia Maxine Wilson, 8 Fjóla Dröfn Friðriksdóttir, 9 Lilja Dögg Valþórsdóttir, 10 Hrefna Huld Jóhannesdóttir, 11 Guðný Guðleif Einarsdóttir.

16.08

Lítið hefur gerst í leiknum hingað til en Keflvíkingar gefa síst meira eftir. Hólmfríður Magnúsdóttir, leikmaður KR, komst í tvö ágæt færi en náði ekki að gera sér mat úr því.

16.15

Olga Færseth skoraði fyrsta mark leiksins á 15. mínútu. Hún skoraði af stuttu færi í nærhornið eftir sendingu frá hægri. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir átti fyrirgjöfina.

16.19

Hrefna Huld kemur KR í 2-0. Aftur kom sending frá hægri kantinum, í þetta skiptið frá Fjólu Dröfn Friðriksdóttur. Hrefna Huld var ein og óvölduð og skilaði boltanum í fjærhornið með einföldu skoti.

16.23

Keflvíkingar gera breytingu á sínu liði. Guðný Petrína Þórðardóttir á greinilega við meiðsli að stríða og hefur Guðrún Ólöf Olsen komið inn á í hennar stað.

16.35

KR-ingar hafa mikla yfirburði í leiknum og greinilegt að mörkin tvö hafa slegið Keflvíkinga algerlega út af laginu.

16.47

Flautað hefur verið til hálfleiks í leiknum. Ekki mikið markvert gerðist síðustu mínúturnar í hálfleiknum.

17.08

Leikurinn er hafinn á ný og er nokkuð jafnræði með liðunum.

17.12

KR er komið í 3-0. Hólmfríður fékk sendingu inn fyrir vörn Keflavíkur og í stað þess að skjóta sjálf lagði hún boltann fyrir Hrefnu Huld sem skoraði í autt markið.

17.21

Keflvíkingar gera aðra breytingu á sínu liði. Varamaðurinn Guðrún Ólöf fer út af og skiptir við Bryndísi Bjarnadóttur. Þess má geta að hún er dóttir Bjarna Jóhannssonar, aðstoðarlandsliðsþjálfara.

17.30

KR-ingar virðast vera hvergi nærri hættir. Bæði Olga Færseth og Hrefna Huld hafa átt góð færi fyrir framan Keflavíkur markið. Þá gera bæði lið breytingar á liði sínum. Lilja Dögg Valþórsdóttir fer út af hjá KR en Valdís Rögnvaldsdóttir kemur inn á í hennar stað. Hjá Keflavík fór Danka Podovac af velli en í hennar stað kom Elísabet Sævarsdóttir.

17.32

Áhorfendur á Laugardalsvelli í dag eru 757 talsins.

17.41

KR gera tvær breytingar á liði sínu. Út af fara Fjóla Dröfn og Guðný Einarsdóttir en í þeirra stað koma Anna Kristjánsdóttir og Margrét Þórólfsdóttir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×