Körfubolti

KKÍ og Iceland Express semja til fjögurra ára

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Matthías Imsland, framkvæmdarstjóri Iceland Express, Hannes Jónsson formaður og Friðrik Ingi Rúnarsson framkvæmdarstjóri KKÍ kynna styrktarsamninginn.
Matthías Imsland, framkvæmdarstjóri Iceland Express, Hannes Jónsson formaður og Friðrik Ingi Rúnarsson framkvæmdarstjóri KKÍ kynna styrktarsamninginn. Mynd/E. Stefán
Köfuknattleikssamband Íslands og Iceland Express skrifuðu í dag undir styrktarsamning til næstu fjögurra ára.

Þetta eru lengstu samningar sem gerðir hafa verið í sögu körfuboltasambandsins. Hann er einnig sá stærsti en samningurinn hleypur á tugum milljóna, eftir því sem Hannes Jónsson, formaður KKÍ, segir.

„Það eru ýmsar nýjungar sem fylgja þessum samningi," sagði Hannes. „Til dæmis að nú munu bæði Íslandsmeistarar Iceland Express-deilda karla og kvenna fá 700 þúsund krónur í verðlaunafé."

Þá verður kynningarstarfið einnig eflt til muna. Auk þess verður framvegis hafður auglýsingaborði á heimasíðu KKÍ þar sem félagsmenn körfuboltaliða geta bókað flug hjá Iceland Express. Þá rennur hluti fargjaldsins til viðkomandi félags.

Einnig er sú nýjung í deildini í vetur að KKÍ mun standa að vali liði umferðarinnar en það verður betur kynnt í næstu viku.

Matthías Imsland, framkvæmdarstjóri Iceland Express, var ánægður með samninginn.

„Körfuboltinn er og hefur verið í gríðarlegri sókn. Það er mikil ánægja innan fyrirtækisins hvernig körfuboltanum hefur vegnað vel. Umfjöllun í fjölmiðlum hefur verið mikil og aðsóknarmet slegin."

Hann segir að hann vonast til að íslenskur körfubolti eflist enn frekar, einnig á erlendum vettvangi.

„Ég vonast til að mynda til að verðlaunaféð verði til þess að íslensk félög taki enn meira þátt í Evrópukeppnunum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×