Fótbolti

Margrét Lára: Svekktar en sáttar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Margrét Lára í leik gegn færeysku meisturunum í KÍ frá Klaksvík í leik liðanna í sumar.
Margrét Lára í leik gegn færeysku meisturunum í KÍ frá Klaksvík í leik liðanna í sumar. Mynd/Matthías Ægisson

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði mark Vals í 3-1 tapi liðsins fyrir Frankfurt í Evrópukeppni félagsliða í dag.

Margrét Lára kom Val yfir seint í fyrri hálfleik en þær þýsku skoruðu sín mörk þrjú á síðustu tíu mínútum leiksins.

Frankfurt er eitt besta félagslið heims og hefur að geyma margar af bestu knattspyrnukonum Þýskalands, núverandi heims- og Evrópumeistara.

„Þetta var mjög fínn leikur að mörgu leyti. Við vorum auðvitað mjög svekktar yfir úrslitunum eftir að við náðum að halda forystunni svona lengi í leiknum. Annað markið sem við fengum á okkur var klaufalegt en það þriðja kom eftir að við reyndum að sækja jafnteflið."

Hún segir að það hafi vissulega verið sætt að komast yfir í leiknum. „Þær eru auðvitað með frábært lið en það má samt ekki gleyma því að þær eru bara ellefu knattspyrnukonur alveg eins og við. Engu að síður var það mikil upplifun að spila gegn þessu liði og rosalega gaman."

Í kvöld mættust hin tvö liðin í riðlinum, heimaliðið Wezemaal frá Belgíu og Everton. Belgíska liðið vann leikinn, 2-1.

Að því gefnu að Frankfurt vinni sína leiki í riðlinum má ætla að leikur Vals og Wezemaal á laugardaginn verði úrslitaleikur um annað sætið í riðlinum.

„Stefnan er sett á sigur en annars eru báðir þessir leikir úrslitaleikir fyrir okkur. Við ætlum okkur að komast áfram og þurfum að vinna þessa leiki til þess."

Hún segir að stemningin í Valsliðinu sé góð þrátt fyrir tapið í kvöld.

„Við vitum að við stóðum okkur rosalega vel. Við erum svekktar en um leið sáttar."


Tengdar fréttir

Valur stóð í Frankfurt

Íslandsmeistarar Vals stóðu heldu betur í einu sterkasta félagsliði heims, Frankfurt frá Þýskalandi, í leik liðanna í Evrópukeppni félagsliða í dag.

Elísabet: Langar helst til að gráta

Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, var heldur betur svekkt með úrslit sinna manna gegn Frankfurt í Evrópukeppni félagsliða í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×