Íslenski boltinn

Vigfús Arnar til Leiknis

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vigfús Arnar í leik með KR gegn ÍA í sumar.
Vigfús Arnar í leik með KR gegn ÍA í sumar. Mynd/Gísli Baldur

Vigfús Arnar Jósepsson hefur gengið í raðir Leiknismanna frá KR. Hann er ekki ókunnugur Leikni þar sem hann hefur í þrígang verið lánaður þangað frá KR.

Hann á að baki 41 leik með Leikni í deild og bikar, bæði í 1. og 2. deildinni. Vigfús var síðast nú í sumar lánaður til Leiknis og lék hann níu leiki með félaginu í 1. deildinni.

Vigfús á 20 leiki að baki með KR, þar af átján leiki í deild og bikar sumarið 2006.

Hann skoraði þrjú mörk með Leikni í sumar og hefur alls skorað níu mörk fyrir félagið en ekkert fyrir KR. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×