Fótbolti

Dregið í milliriðla á EM U19

Mynd/Heimasíða UEFA

Íslenska U19 ára landslið karla verður í milliriðli með Noregi, Ísrael og Búlgaríu í undankeppni EM 2008 þar sem sigurvegarinn í riðlinum kemst í úrslitakeppnana sem fram fer í Tékklandi í júlí á næsta ári. Milliriðillinn verður leikinn í Noregi í apríl og maí í vor.

Íslenska liðið tryggði sér sæti í milliriðli með því að lenda í öðru sæti í riðli sínum í undankeppninni þar sem Englendingar höfðu sigur og Belgar og Rúmenar höfnuðu í 3. og 4. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×