Íslenski boltinn

Margrét Lára og Hermann knattspyrnufólk ársins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir og Hermann Hreiðarsson.
Margrét Lára Viðarsdóttir og Hermann Hreiðarsson. Mynd/Anton

Margrét Lára Viðarsdóttir og Hermann Hreiðarsson voru í dag útnefnd knattspyrnumaður og -kona ársins af Knattspyrnusambandi Íslands.

Hólmfríður Magnúsdóttir varð önnur í kjörinu og Ásthildur Helgadóttir þriðja.

Hjá körlunum var Eiður Smári Guðjohnsen í öðru sæti en Grétar Rafn Steinsson í því þriðja.

Viðtöl við Hermann og Eið Smára birtast á Vísi síðar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×