Handbolti

Alfreð í björgunarleiðangur fyrir HSÍ

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alfreð Gíslason, fyrrverandi landsliðsþjálfari, mun gegna lykilhlutverki í því að finna hæfan erlendan þjálfara fyrir íslenska handboltalandsliðið. Hann sést hér með Einari Þorvarðarsyni, framkvæmdastjóra HSÍ, sem er farinn út til Kölnar þar sem hann fer yfir stöðuna með Alfreð.  fréttablaðið/pjetur
Alfreð Gíslason, fyrrverandi landsliðsþjálfari, mun gegna lykilhlutverki í því að finna hæfan erlendan þjálfara fyrir íslenska handboltalandsliðið. Hann sést hér með Einari Þorvarðarsyni, framkvæmdastjóra HSÍ, sem er farinn út til Kölnar þar sem hann fer yfir stöðuna með Alfreð. fréttablaðið/pjetur
Aron Kristjánsson hefur hafnað boði HSÍ um að gerast landsliðsþjálfari í handknattleik. Hann er fjórði þjálfarinn sem segir nei við HSÍ en áður höfðu Magnus Andersson, Dagur Sigurðsson og Geir Sveinsson gefið sama svar og Aron.

HSÍ er þar með komið aftur á byrjunarreit í leitinni endalausu að arftaka Alfreðs Gíslasonar. Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, fór utan til Þýskalands í gær til þess að hitta Alfreð Gíslason, meðal annars vegna landsliðsmálanna. Alfreð hefur verið HSÍ innan handar upp á síðkastið og nú hefur verið kallað á hann til að koma af fullum krafti í björgunarleiðangur.

Alfreð þekkir betur til en margir aðrir í handboltaheiminum og er ákaflega vel tengdur. Hann hefur stungið upp á einhverjum nöfnum sem hann telur vert að skoða og mun nú hjálpa Einari í viðræðum við líklega kandídata. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er enginn einn ákveðinn þjálfari í sigtinu sem stendur og ætlar HSÍ að heyra hljóðið í nokkrum og vega síðan og meta þá möguleika sem þeir standa frammi fyrir. Annar möguleiki sem einnig hefur ekki verið útilokaður er að ræða við Guðmund Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfara.

Aron segir að það hafi verið mjög erfitt að segja nei við HSÍ en hann hafi hreinlega ekki getað hlaupið á brott frá skuldbindingum sínum við Hauka.

„Ég hafði mikinn áhuga á starfinu. Það lá samt fyrir að ég gat ekki sinnt báðum störfum og get ekki hlaupið frá hálfkláruðu verki hér hjá Haukunum. Ég er vel til í að þjálfa landsliðið en tímasetningin hentar mér því miður engan veginn. Svo á ég líka von á mínu þriðja barni í lok júlí og ef við værum að fara á ólympíuleika þá myndi ég missa af því líka," sagði Aron í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×