Fótbolti

Góður sigur á Norðmönnum

Gylfi Þór skoraði fyrsta mark Íslands í dag
Gylfi Þór skoraði fyrsta mark Íslands í dag Mynd/Heimasíða Reading

Íslenska U-19 ára landsliðið byrjaði mjög vel í milliriðli EM í Noregi og lagði gestgjafana 3-2 í hörkuleik í dag. Íslenska liðið hafði yfir 2-1 í hálfleik. Reynir Gunnarsson skoraði tvívegis fyrir Ísland og Gylfi Þór Sigurðsson skoraði fyrsta markið.

Íslenska liðið leikur við Ísraela á þriðjudaginn, en Ísraelar töpuðu 1-0 fyrir Búlgörum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×