Íslenski boltinn

Sigurvin Ólafsson í Gróttu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigurvin Ólafsson varð síðast meistari með FH.
Sigurvin Ólafsson varð síðast meistari með FH. Mynd/Anton

Sigurvin Ólafsson hefur gengið til liðs við Gróttu en þetta staðfesti hann í samtali við Vísi í dag.

Sigurvin lék síðast með FH en ákvað að síðasta tímabili loknu að leika ekki áfram með félaginu. Hann á að baki langan feril en hann hefur orðið Íslandsmeistari með ÍBV, KR og FH.

„Ég ákvað að ganga frá þessu núna áður en félagaskiptaglugginn lokaði í kvöld," sagði hann í samtali við Vísi en hann er nú staddur í fríi á Spáni.

„Ég hef verið að æfa með þeim af og til í vetur enda á ég heima rétt við Seltjarnarnes. En það er þar með ekki sagt að ég verði á fullu með þeim, ef bakterían kviknar aftur hjá mér tek ég kannski nokkra leiki með þeim."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×