Naumur sigur Grindavíkur á Keflavík Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. nóvember 2008 21:25 Úr leik Grindavíkur og Keflavíkur á síðasta keppnistímabili.
Grindavík vann í kvöld eins stigs sigur á Keflavík eftir að hafa verið með mikla forystu í byrjun leiksins. Þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í kvöld. KR vann sigur á Stjörnunni, 90-81, og þá vann FSu lið Blika með 23 stiga mun, 93-70. Sem fyrr segir byrjuðu Grindvíkingar miklu mun betur í kvöld og voru með væna forystu eftir fyrsta leikhluta, 23-8. Sá munur minnkaði talsvert í öðrum leikhluta en þá var staðan orðin 39-36, Grindvíkingum í vil. Keflvíkingar komust yfir í þriðja leikhluta en Grindvíkingar tóku fljótt frumkvæðið aftur og héldu út allt til loka. Gunnar Stefánsson hefði getað jafnað metin fyrir Keflavík með vítakasti í blálokin en hitti ekki. Páll Kristinsson fór þá á vítalínuna fyrir Grindavík en misnotaði bæði sín skot. En tíminn var of naumur fyrir Keflvíkinga til að ná almennulegu lokaskoti og varð niðurstaðan 80-79 sigur Grindavíkur. Brenton Birmingham skoraði flest stig fyrir Grindavík eða nítján talsins en hann tók þar að auki þrettán fráköst. Páll Kristinsson og Páll Axel Vilhjálmsson voru með sautján stig hvor. Hjá Keflavík var Sigurður Þorsteinsson stigahæstur með 21 stig. Sverrir Þór Sverrisson skoraði nítján og Gunnar sautján. Sigur FSu var nokkuð öruggur en staðan í hálfleik var 45-42, FSu í vil en liðið tók svo öll völd í síðari hálfleik. Sævar Sigurmundsson var stigahæstur í liði FSu með 23 stig, Björgvin Valentínusson skoraði 22 og Vésteinn Sveinsson átján. Hjá Breiðabliki var Nemanja Sovic stigahæstur með 20 stig auk þess sem hann tók tíu fráköst.Grindavík er í öðru sæti deildarinnar með tólf stig, tveimur stigum á eftir toppliði KR. Keflavík er svo í þriðja sæti með átta stig. FSu er í sjöunda sæti með sex stig, rétt eins og Breiðablik sem er í níunda sæti. Stjarnan er svo í tíunda sæti með fjögur stig.
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira