Fótbolti

Ronaldinho ekki búinn að gefast upp

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ronaldinho.
Ronaldinho.
Ronaldinho hefur trú á því að AC Milan eigi enn möguleika á ítalska meistaratitlinum þrátt fyrir dýrkeypt tap gegn Juventus á sunnudagskvöld. Milan er nú níu stigum á eftir erkifjendum sínum í Inter sem trjóna á toppi deildarinnar. „Við höfum ekki misst trúna. Inter hefur gott lið en við erum líka góðir og munum alls ekki gefast upp," sagði Ronaldinho sem er ánægður með þá ákvörðun sína að koma til Ítalíu. „Mér líður virkilega vel hérna og sé ekki eftir því að hafa ákveðið að spila í ítalska boltanum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×